Feb 8 2009

… ritstífla.

Allt í gúddí og gengur bara þokkalega þessa dagana.

Ánægður með allt frostið sem hefur verið uppá síðkastið, engin úrkoma, enginn vindur en skítakuldi og það er bara fínt, ekkert slabb og viðbjóður !

Fórum á blót síðustu helgi og það var bara fjör, alltaf gaman að blóta og komst ég í gegnum þetta án þess að drekka mig leiðinlegan, til hamingju ég ! Sunnudagurinn var sjúkur !!!! Vaknaði kl 9 um morguninn eftir stuttan svefn eins og lítill óþolinmóður krakki, gat ekki sofið fyrir spenningi að komast á fjöll og endaði með því að mín heittelskaða hálfpartinn ýtti mér út til fá svefnfrið. Veðrið var uppá sitt besta og komu Birgitt prins og Ugly bastard með stóra líterinn úr björgunarsveitinni sem beið spenntur eftir brekkum og púðri. Tókum af við stífluna í fljótum,hópur af krók og hofsós, og rörað uppá lágheiði með smá vandkvæðum, einn úrbræddur sleði og annar ökumaður úrbræddur í öxl og viðbeini, en þeim var bara skutlað heim. Keyrt var í óendalega marga hringi uppá lágheiði í rosa fínu færi, líterinn sætti sig loks við mig og var maður farinn að ná tökum á þessu skrímsli. Ánægjulegur dagur.

Þessa dagana reynir maður að hirða upp alla aukavinnu sem maður getur gripið og hefur verið bara nokkuð stíft að gera hjá mér, ánægður með það því að hver króna telur inní búið þessa dagana. Sárast finnst mér að nískan er farin að bitna á norðurferðum, fer alltaf sjaldnar og sjaldnar norður, slæmt mál. En það breytir ekki því að norður skal halda þegar rétti tíminn gefst.  Bíð spenntur eftir páskafríi, spurning samt hvort að verður eitthvað frí að viti því að landkrabbinn ég gæti dottið á sjóinn á grásleppu.

Það virðist allt vera fast í bakkgír þessa dagana, við drögum saman, gamlar hefðir dregnar upp, gallinn er sá að lánin hækka meðan launin lækka. Út með íslensku bankanna, inn með erlendu og höldum íslensku krónunni í lágmarki innan okkar lands.


Jan 21 2009

Í tilefni þess….

… að ég var að opna mér síðasta blá thuleinn sem ég átti í ísskápnum síðan síðustu helgi,

… að ég yfirgaf ekki sökkvandi skip og hélt efst í fánastöngina á FRAMSÓKN sem er í blússandi framsókn í dag.

… að flokksfélagar mínir skynja hvað fólkið vill, nýtt blóð !!! Við hefðum getað kosið gamla krumpukellingu.

… að ég ætli að skipta yfir í bundið mál.

Þar sem bloggheimar eru logandi af allskonar hispurskjaftæði fram og til baka um þessi blessuðu mótmæli ætla ég að mótmæla mótmælum.

Heimskuleg, fáránleg, kjánaleg og barnaleg er það eina sem mér dettur í hug þegar ég horfi uppá þessa illa stöddu íslendinga vera grýta eggjum, kasta skyri og kveikja bálköst. Ég er ekki á móti mótmælum, ég vil bara að það sé staðið öðruvísi að þeim. Enn og aftur fer verst í mig hvernig er farið með lögregluna, ekki nokkur maður getur logið því að mér að sá sem handleggsbrotnaði í gær hafi aðeins verið að standa upp í rólegheitunum þegar lögreglumaðurinn braut á honum hendina með kylfunni. Myndavéladúddinn er alþekktur glæpamaður, nauðgari og dópkóngur, trúiru honum eða þessum með húfuna og kylfuna ?

Allvegana, afhverju eru fjölmiðlar að sleikja upp þessa kolbrjáluðu mótmælendu og stilla lögreglunni upp við vegg ?  Við erum fkn Íslendingar, ef við sjáum löggu sem ætlar sér að stöðva okkur þá erum við eins og leikmenn í lélegum fótboltaleik, lítil eða engin snerting og það er tekið þrefalt flikk flakk með tilheyrandi væli og grenjað með andlitið ofaní jörðina þar til dómarinn dæmir víti. Punkturinn sem ég er að reyna koma að hérna er sá að það er ekki lögreglunni að kenna að svona er komið fyrir okkur. Lögreglan er að vinna þá vinnu sem við samþykktum að þeir yrðu að vinna. Ef að allir sleppa því að hnoðast á lögreglunni aðeins til að komast nær veggnum á Alþingishúsinu þá verður ekki beitt neinu valdi.

Ég finn til með fólki sem stendur í stríðum við að halda sér á báðum fótum til að halda uppi eðlilegu lífi, sakna þess að fólk hélt að það ætti fullt af peningum og síðast en ekki síst þá finnst mér verst hvað margir nemendur mr og verzló falla á mætingu þessa önnina !!! Mætið frekar í tíma heldur en að mótmæla allan daginn.

En að því helsta.

Litla fjölskyldan í breiðholtinu er búin að aðlaga sig að breyttum aðstæðum og ætlar sér að taka á þessu eins og það kemur á móti okkur. Dísan er komin í skóla ásamt fullu tamningarstarfi eftir skóla til að búa til peninga fyrir Binnasinn seinna meir.  Ég vinn fulla dagvinnu og reyni að næla í svörtu verkin inná milli, svo er nýjasta nýtt að mæta í ræktina, björgunarhringurinn var orðinn bláleitur í köntum og svo var komið stórt THULE merki á bakið, skil ekkert í þessu. Sveinspróf í júní vonandi og þá er spurning hvort maður fari að pæla í meistaranum strax, erfitt að halda í skóla aftur.

Annars fórum við norður í Miðfjörð síðustu helgi að sækja saltkjötið og það var bara truntugaman, gott veður og allir í gúddí fíling, mér fannst það gaman að ég lagði mig bara snemma á laugardagskvöldið. Fórum mjög skemmtilega fjórhjólaferð og sé ég mig tilneyddan til að versla mér svona hjól þegar líður á þrítugsaldurinn.

Hvað er að ske ?

Gæðingar,

Ræktin,

Skóli,

og ofan á allt,

Fjórhjól !


Dec 15 2008

Yeeeeeessss !!!!!

Vhúhúhúhú, nú er ég eins og lítil stelpa í barbílandi !!!!

Loksins eitthvað JÁKVÆTT !!


Dec 8 2008

Kjánahrollur..

Því miður, þá fer um mig kjánahrollur þegar ég horfi á mótmælin sem urðu í alþingishúsinu í dag.

Hvernig átti þetta að virka ? Hlaupa inn og bera ríkisstjórnina út ? Ef þetta er leiðin til að vekja athygli þá er þetta ekki rétta leiðin.

Hörður Torfa á að troða þessu mótmælum uppí endann á sér og nota þau sem tappa í leiðinni. Ég þoli ekki þessa smánarlegu mótmæli sem vefja uppá sig allskonar fáránleg hörð mótmæli ungra aðila sem gera sig einungis af fíbbli aðeins til að láta taka í sig af lögreglu og blótar svo löggunni ???? Ef þú vinnur við að selja sjónvarp, þá seluru sjónvarp, ef þú vinnur við lögreglustörf áttu að vinna við lögreglustörf. Þessir asnalegu kjánar gera lítið úr öllu því sem þau þykjast standa fyrir og gera.

Ef löggan sér sig knúin til að taka menn út með valdi á að labba út og bölva einhverju öðru er lögreglunni, þeir eru aðeins að vinna vinnuna við þau lög sem við samþykktum síðast þegar við kusum.

Ég er ekki fylgjandi fjandans ríkisstjórninni og er meðlimur sökkvandi skips, en staðreyndin er sú, ástandið er að það alvarlegt að það er alveg sama hver situr við stjórn þessa lands, sá aðili mun gera sitt besta!  Seðlabankastjóri er ekki stjórnandi þessa lands og því miður togar hann í spotta, hann má einnig fara með þessum fáránlegu mótmælum uppí svartholið á Herði !!!!!

Engan fokking Mugabe hér !!!!


Dec 7 2008

Hugleiðingar…

… ég á svo bágt !

Nú þegar maður er á blómaskeiði lífsins er bankakerfi heimsins að gefa upp öndina við eina mestu fjármálakreppu sem heimurinn hefur staðið framfyrir… Þá fæ ég alltaf flugur,

Fyrir rétt rúmlega ári varð ég fórnalamb góðæris sem stjórnvöld,bankar og fleiri auðmenn töldu okkur öll trú um og ég keypti mér bíl. Þar sem við hjúin erum með óbilandi dellu til að þvælast landshorna á milli hverja einustu helgi hugsaði ég með mér að ég yrði að vera vel skóaður til að halda örygginu í fyrirrúmi vegna þess að veðurspáin stoppaði mann sjaldan. Fyrir valinu varð næstum nýr nissan navara breyttur á 35″ dekk með fleira góðgæti, Bíll sem var sett á 4,9 milljónir íslenskra króna en það slá sem sló endanlegu ákvörðun mína var sú að ég fékk bílinn á aðeins 4,1 milljón íslenskra króna.

Þegar ég spurði um áhvílandi lán á bifreiðinni var mér sagt að það væri í erlendri mynd og væri aðeins 4,1 milljónir íslenskra króna, heppinn ég, yfirtók lánið og keyrði heim með bros á vör en smá hræðslu, ekkert mál hugsaði ég, ef mér finnst þetta of mikið sel ég bara bílinn og græði kannski hundrað þúsund íslenskar krónur fyrst að ég fékk hann svona ódýrt.

Áður átti ég aðeins skuldlausa bíla, fyrsti bíllinn var toyota corolla og síðan benz e300 dísill sem ég sé eftir ennþá þann dag í dag, ég átti aðeins skuldlausa sleða, skuldlaust hjól og var ílla við VISA og bifreiðarlán.

4 mánuði eftir að ég eignaðist mína fallegu nissan navöru bifreið fór lánið að hækka, ég hugsaði… hækkar lánið ?? Hvernig getur lán hækkað þrátt fyrir að ég borgi af því ? Jújú ég viðurkenni það að ég var ekki með á nótunum en hvernig átti þetta að geta skeð ? Jú íslenska krónan byrjar að veikjast og í þetta skipti fékk hún ekkert kvef !!

Lánið hækkaði og hækkaði og mér leist ekki á blikuna, sá framá að þurfa borga fleiri hundruð þúsund með bílnum mínu til að losna við hann,  rembdist við að reyna losna við hann í allar áttir, allskonar skipti og rugl en alltaf var sama súpan uppí.

Þar til einn dag…

..bjartsýnis maður mikill stökk inná e-mailið hjá mér og bauð mér benz slyddujeppa í staðinn fyrir mína ofveðsettu navöru, jújú ég var alveg til í að skoða það, hann kom og sýndi mér á fimmtudagskveldi og á föstudegi var ákveðið að skipta, ég spurði um lánið á benzanum sem var jú milljón íslenskra króna minna en lánið á minni heittelskuðu navöru, en eigandinn kvaðst lánið á benz væri í erlendri mynt. Ég hugsaði með mér, jæjah ég fer allavegan milljón niður í lánum.

Síðast heyrði ég af minni heittelskuðu navöru með lán á bakinu uppá rúmlega 6 milljónir og hugsaði ég með mér, fjúff, eins gott að ég lét hana frá mér.

Og þar sem bjartsýnismaðurinn hélt mér í þeirri trú að benzinn væri í erlendri mynt meðan við skiptum á bílum hélt ég að ég væri í sömu súpunni…

… greiðsluseðillinn sagði 100% ISK

Í dag borga ég glaður af bílnum mínum hugsandi um greyið bjartsýnismannin sem hélt að hann væri að græða fullt á peningum með því að taka við erlendu láni og treysta á styrkingu krónunnar og “svindla” inná mig íslensku láni sem lækkar aldrei né hækkar.

Nú stendur mér tvennt til boða….

Reyna selja benzann út og sleppa þokkalega frá þessu öllu saman, nokkrir hundarð kallar í mínus.

Taka við sendibíl sem er með erlent lán og geggjuðu götuhjóli inní bílnum sem er einnig erlent lán á. Ásamt öllum gír til að stunda sportið, frítt.

…. seinna tilboðið hljómar uppá milljón íslenskra króna niður í lánum en í erlendri mynt.

.. eða á maður að vera bjartsýnismaður og treysta á styrkingu íslensku krónunnar ?

Annars langar mig að skipta öllu þessu drasli fyrir lóð,jörð eða húsi fyrir norðan.


Dec 4 2008

Fjandinn…

.. mikið asskoti hlakkar mig til að komast í jólafrí,


Nov 25 2008

Ég og Elvar í fyrrasumar, jafnvægisskynið er alveg uppá millimeter hjá okkur.

Jafnvægisæfingar


Nov 24 2008

Já sæll !!!

Já, vel fór í þetta skiptið,  en sæææll !! Elvar !!?

Rófubein303


Nov 3 2008

Landkrabbi ??

Vinnufélagi minn kom arkandi niður stigann í vinnunni í dag og gjammaði um leið á mig og annan og spurði hvort við værum ekki ,,soddan sjóhundar??” eins og hann orðaði það og spurði út í ákveðna frétt sem hann hafði verið að lesa rétt áður á mbl.is

…. Mjög undrandi á svip spurði hann… Er eitthvað annað sem þið kallið stýri á bátum?   Já sagði ég og nefndi eina útfærslu á að stýrið(stýrisblað) væri aftan við skrúfuna á bátnum til að stýra. ,,Já okei !!! Ég hélt virkilega í smá stund að stýrið(stýrishjólið) hefði bara brotnað af!!!!”  Þetta vakti mikla lukku og var hlegið dúlega af þessu !!

Stýrislaus bátur

Menn voru bara brattir í vinnunni í dag, húmorinn virðist vera dýrmætari með hverjum deginum, þetta var t.d mjög skemmtilegt hádegi þar sem var tekið stutt pool mót og menn eldhressir ! Sem er mjög mikilvægt því að andrúmsloftið hefur verið hrikalegt vegna uppsagna á 10 starfsmönnum í síðustu viku. Ég sjálfur var 110% viss á að mér yrði sagt upp þar sem ég hef aðeins verið í 7 mán hjá fyrirtækinu en var ekki og þótt að það sé ljótt að segja það þá er ég gulltryggður í góðan tíma áfram vegna þess að sá sem er á móti mér í vöruverndarhliðunum var sagt upp, þannig að ég er sá eini í fyrirtækinu sem kann á þetta. Fékk nett spennufall þegar ég kom heim,  greinilega sett mikið traust á mig.

En talandi um sjóinn þá hefur maður horft mikið til sjávar þessa dagana, peningarnir hafa heillað,friðurinn frá krepputali og bankastaðan myndi lagast. Plönin okkar standast þrátt fyrir kreppu, en frestast aftur á móti. Get ekki verið að skipta um vinnu þegar staðan er svona í þjóðfélaginu, nú er bara að herða sultarólina og spara enn meir,

…einn daginn verður farið norður á föstudegi og ekki komið til baka á sunnudegi.


Oct 30 2008

… afmæli !!

Ægir nokkur Finnsson frændi minn á afmæli í dag, stórafmæli !!! Til hamingju með daginn frændi. www.finnsson.net